Hæææ
Langt síðan þið hafið heyrt í mér... Það er bara búið að
vera klikkað að gera. En já ég ætla að skrifa hérna smá ferðasögu
fyrir þá sem nenna að lesa hana
Þýskaland
Já ég og móðir mín fórum í þessa miklu Evrópureisu 19. júní.
Byrjaði á því að fljúga til Danmerkur og fór svo þaðan með lest til
Þýskalands. 7 tíma ferð en ég hafði besta ferðafélagann, ipodinn,
við hendi og tónlistin lætur tímann alltaf líða hraðar en hann í
rauninni líður þannig að þetta var bara fínt. Þegar við mættum til
Kílar (borgin sem ég bjó í þegar ég bjó í þýskalandi) þá fórum við
beint í hús hjá vinafólki okkar og beint að sofa, enda hafði þetta
verið frekar langur dagur. Dagarnir liðu svo og ég nenni nú ekkert
að segja frá öllu hér en ég skal taka nokkur vel valin atriði.
Ég fór t.d. í gamla skólann minn og gamla hortið. Alveg
yndislegt og endalaust af gömlum minningum sem rifjuðust upp
. En
já ég hitti líka Caroline og Önnu Marie, bestu vinkonur mínar þegar
ég bjó þarna. Vá þær voru búnar að breytast, samt eiginlega bara í
útliti.. alveg sömu manneskjurnar
En já við hittumst bara oft og
á Kílarvikunni sem var í gangi á meðan ég var þarna. Mjög gaman
hljómsveitir á hverju kvöldi og alltaf mörg þúsund manns á svæðinu.
En jæja nóg um það. Ég hitti líka Thorbi, við vorum geðveikt close
þarna í gamla daga þannig æðislegt að hitta hann aftur. En já hef
þetta bara stutt og gott um þýskaland
Madeira
Yyndislegasta ferð sem ég hef farið í
Það var flogið á
,,Aeroporto da Madeira" um miðjan daginn og svo var keyrt uppá
hótel. Vá í alvöru þetta er fallegasti staður sem ég hef séð. Þökin
á öllum húsunum eins og öll húsin eins á litin, og blóm útum
allt! ótrúlegt hvað það er mikill gróður þarna. Við sem sagt
mættum á hótelið og þá var yfirbókað þar þannig að.. við þurftum að
fara á eikkað annað hótel... Vesen en samt bara gaman að sjá 2
mismunandi hótel.. Það var bara geeðveikt veður strax
fyrsta daginn og maður fór í sólbað daglega svo í bæinn um kvöldið.
og vááá karlmennirnir þarna... sjitt sko þeir voru oooooof
fallegir! Allir sem þekkja mig vel vita að ég er vitlaus í sona
latino gaura og þett var bara eins og himnaríki fyrir mig
Alveg
æðislegt. Svo fórum við mamma bara út að borða á kvöldin og að
þvælast í bænum. Frábær ferðafélagi=]
En svo sem sagt ákváðum ég og Filipe að hittast í Forum
Madeira, shopping centre á mánudeginum þarna rétt hjá. Það var
bara æðislegt kvöld
Vorum þarna bara á kaffihúsinu í sona
3 tíma, svo þurfti ég að fara heim þannig við kvöddumst bara og ég
dreif mig..
Svo fórum ég og mamma í sona skoðunarferðir, byrjuðum á austur
og vestur ströndinni á þriðjudeginum og fimmtudeginum og fórum
síðan á litla eyju sem heitir Porto Santo, 5000 íbúar þarna þannig
það var ekkert svaka um að vera, samt alveg geðveikt gaman í
ferðinni
Ekki jafn mikið af blómum eins og á Madeira en samt
flott landslag=]
En já svo á mánudeginum hitti ég Filipe og Fernando á
hótelinu bara og við fórum niðrá ströndina... Vorum bara þar mest
allan daginn að synda í sjónum, kúra í sólbaði og fl. Yndislegur
dagur bara
<3 Hittumst síðan aftur næsta dag og þá var hann
búinn að gera það krúttlegasta í heeimi handa mér
Tók myndir
þannig getið séð það í myndunum sem ég næ vonandi að setja inná...
Allavega vorum bara aftur á ströndinni allan daginn en fórum svo í
Madeira Forum um kvöldið með Fernando. Hittum Joao og Sofia,
vini hans og fórum aðeins á kaffihús með þeim. Ákváðum svo
öll að skella okkur í bíó á Transformers. Mjög gaman ég sá
reyndar ekkert voðalega mikið af myndini en...
Svo bara fór ég
heim.
Daginn eftir eða næst síðasta daginn minn þarna hittumst
við svo aftur og það var alveg jafn yndislegt
... löbbuðum þarna
saman útum allt og hann kenndi mér að hoppa uppí öldurnar í
sjónum, geðveikt gaman
Löbbuðum svo bara þarna um
ströndina og eikkað aðeins í kring, mjög
gaman
. Svo um kvöldið fórum ég og mamma á sona ,,folk" dans
sýningu einhverja þarna á hótelinu, mjög gaman og skrautlegt
haha.
Þá kom seinasti dagurinn og örugglega með sársaukafyllstu sem ég
hef upplifað..:/ Við mamma byrjuðum nú bara daginn á því að fara í
seinasta sólbaðið og fá okkur að borða þarna á hótelinu. svo
skellti ég mér bara í sturtu og kláraði að pakka allt saman. Var
búin að ákveða að hitta Filipe í klukkutíma í viðbót til að
kveðjast... yndislegt að fá aukatíma en þetta var sársaukafyllsti
og virtist vera stysti klukkutími sem ég hef upplifað...
En já ferðin heim gekk vel og við komum við aftur í þýskalandi
því við urðum náttlega að fara til danmerkur til að fljúga til
baka, fórum í sona hákarlasafn í þýskalandi. Ég með minn
hákarlaótta ákvað að vera hugrökk að reyna að horfast í augu við
hann:') Varð svoooo hrædd.. díses en samt er minna hrædd við þá
núna held ég
sem er mjög gott... En já svo fórum við til
Danmerkur með ferjunni og þaðan flugum við til gamla góða
Íslands
Þar hitti ég mínar yndislegu vinkonur sem ég var búin að sakna
svoooo mikið og sagði þeim allt sem tók sinn tíma
Svo bara
byrjaði ég í vinnunni aftur og mikið að gera áfram þar og svona. Er
síðan bara mest búin að vera með vinunum ásamt vinnunni.. Fór í
tívolíið um daginn með Láru og Margréti og það var bara æðislegt..
við Lára lágum siðan bara úti að kjafta til 1 um nóttina
Takk
fyrir kvöldið<3
En já vona að þið hafið nennt að lesa þetta allt! efast um það
en okay:') haha
Er að reyna að setja inn myndir en þetta er eikkað fucked up en
ég ætla að halda áfram að reyna
Bæææ..
Þórdís<3